Fara í efni

Jákvæð samskipti smita út frá sér

Við þekkjum hvað það hefur mikið að segja þegar einhver sýnir manni tillitssemi, gefur sér tíma til að hlusta eða hvetur mann áfram. Lífið getur breytt um lit og við finnum fyrir meiri gleði og auknum krafti. Að finna fyrir góðvild og umhyggju getur skipt sköpum fyrir vellíðan og hvatt okkur til að sýna öðrum tillitsemi og hlýju.
Jákvæð og vingjarnleg samskipti smita út frá sér og við getum haft heilmikil áhrif á aðra með orðum og athöfnum. Og jákvæð áhrif þess að sýna öðrum góðvild, gefa af sér og láta í ljós þakklæti eru þekkt.
VIRK stóð fyrir vitundarvakningunni "Virkjum góð samskipti" haustið 2020 og var lögð áhersla á hugtökin umhyggja, jákvæðni, samkennd, þakklæti, tillitsemi og góðvild til að minna á gildi góðra samskipta.  

- Ef smellt er á myndir hér á neðan opnast pdf-skjöl sem hægt er að prenta út.

Með því að sýna öðrum umhyggju verndum við hvert annað og búum til betra samfélag. Að finna stuðning frá öðrum getur skipt öllu máli á erfiðum tímum.

Margir telja að mannleg samskipti séu það mikilvægasta í lífinu. Umhyggja er lykillinn að því að byggja þau upp og viðhalda - að bera hag annarra fyrir brjósti og sýna þeim velvild. Við erum til staðar fyrir vini okkar og fjölskyldu, sýnum væntumþykju, tölum hlýlega og réttum hjálparhönd. Við getum einnig sýnt ókunnugum umhyggju með hugulsemi og virðingu. 

- Smelltu á mynd til að sjá myndbandið. 

 

Við getum veitt öðrum innblástur og haft góð áhrif á fólkið í kringum okkur þegar við tileinkum okkur jákvætt lífsviðhorf. Þó aðstæður séu erfiðar er oftast hægt að finna eitthvað jákvætt ef við leitum nógu vel. 

Það getur stundum verið erfitt að sjá björtu hliðarnar en það er sannarlega þess virði að reyna. Við getum til dæmis hugsað um það sem við erum þakklát fyrir í lífinu eða gert eitthvað skemmtilegt innan þess ramma sem við höfum. Allt verður léttara og ánægjulegra með jákvæðu hugarfari, bæði á vinnustaðnum og heima við.

- Smelltu á mynd til að sjá myndbandið. 

 

Að sýna samkennd með því að vera til staðar fyrir aðra og sjá sjónarhorn þeirra getur ráðið úrslitum. Við getum sett okkur í spor annarra og hjálpað þeim að finna að þau eru ekki ein.

Samkennd er getan til að skilja eða skynja það sem aðrir eru að upplifa og að vissu marki að taka þátt í því. Ef við skynjum að einstaklingur gengur í gegnum erfiða tíma höfum við ekki endilega lausn á vandanum en við getum hjálpað með því að gefa okkur tíma til að hlusta. Það sem við segjum skiptir oft minna máli en samveran og tengslin. 

- Smelltu á mynd til að sjá myndbandið. 

 

 

Þegar við þökkum fyrir það sem við höfum og sýnum öðrum þakklæti þá líður okkur betur. Við getum öll fundið eitthvað til að þakka fyrir og með því að sýna öðrum þakklæti gefum við góða gjöf.

Þakklæti er að taka eftir og meta hið jákvæða í kringum okkur. Þegar við beinum athyglinni að því sem við höfum í stað þess sem vantar upp á getum við haft jákvæð áhrif á skap og tilfinningar en einnig á líkamlega heilsu okkar. Við byggjum sterkari sambönd og virðumst ráða betur við mótlæti og streitu ef við sýnum þakklæti. Sumir segja að þakklætið sé lykillinn að hamingjunni.

- Smelltu á mynd til að sjá myndbandið. 

 

 



Á tímum heimsfaraldurs hefur tillitssemi sjaldan verið mikilvægari. Athafnir og orð hafa mikil áhrif og við getum valið að koma fram við aðra eins og við viljum að þeir komi fram við okkur.

Fátt er eins mikilvægt í mannlegum samskiptum og að sýna öðrum virðingu og hugulsemi. Tillitssemi krefst þess að við hugum að tilfinningum fólks, setjum okkur í spor þess og sýnum þolinmæði og skilning.

Það er gæfa að umgangast tillitssamt og hlýtt fólk. 

- Smelltu á mynd til að sjá myndbandið. 

 

 

Sýnum góðvild í verki. „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt“. Að sýna öðrum góðvild getur fært þeim og okkur sjálfum mikla vellíðan.

Góðvild einkennist af gjafmildi, hugulsemi og umhyggju fyrir öðrum án væntinga um að fá eitthvað í staðinn. Jákvæð áhrif þess að aðstoða aðra eru þekkt og fátt er meira gefandi eða smitar meira út frá sér en góðvild.  

- Ljóðlína (innan gæsalappa) er úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediksson. 

- Smelltu á mynd til að sjá myndbandið. 

 

 


Ef smellt er á orðin opnast pdf-skjöl sem hægt er að prenta út: Umhyggjajákvæðnisamkenndþakklætitillitssemigóðvild
Virkjum góð samskipti

Góð samskipti smita út frá sér

Þakklæti - lengri

Þegar við þökkum fyrir það sem við höfum og sýnum öðrum þakklæti þá líður okkur betur. Við getum öll fundið eitthvað til að þakka fyrir og með því að sýna öðrum þakklæti gefum við góða gjöf.

Umhyggja - lengri

Með því að sýna öðrum umhyggju verndum við hvert annað og búum til betra samfélag. Að finna stuðning frá öðrum getur skipt öllu máli á erfiðum tímum.

Góðvild - lengri

Sýnum góðvild í verki. „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt“. Að sýna öðrum góðvild getur fært þeim og okkur sjálfum mikla vellíðan.

Jákvæðni - lengri

Við getum veitt öðrum innblástur og haft góð áhrif á fólkið í kringum okkur þegar við tileinkum okkur jákvætt lífsviðhorf. Þó aðstæður séu erfiðar er oftast hægt að finna eitthvað jákvætt ef við leitum nógu vel.

Tillitssemi - lengri

Sjaldan hefur tillitssemi verið eins mikilvæg og nú. Athafnir og orð hafa mikil áhrif og við getum valið að koma fram við aðra eins og við viljum að þeir komi fram við okkur.

Samkennd - lengri

Að sýna samkennd með því að vera til staðar fyrir aðra og sjá sjónarhorn þeirra getur ráðið úrslitum. Við getum sett okkur í spor annarra og hjálpað þeim að finna að þau eru ekki ein.

Fleiri myndbönd

Hér á velvirk.is má finna umfjöllun um fjölmargt sem tengist heilsu okkar og almennri líðan. Nefna má hugmyndir um hvað við getum tekið okkur fyrir hendur á tímum sóttvarna, margvíslegt efni um streitu og umfjöllun um hvernig er að vinna heima í þessu sérkennilega ástandi. Hér geta stjórnendur einnig nálgast góð ráð sem gætu gagnast við þessar aðstæður.

Gagnlegt efni má einnig finna á síðu Embættis landlæknis, svo sem Heilræði á tímum kórónuveiru.