Fara í efni
Kynferðisleg áreitni á vinnustað

Það má ekkert lengur

- Mátti þetta einhvern tímann?

Viðgengst kynferðisleg áreitni á þínum vinnustað?

 

Kynferðisleg áreitni virðist töluvert vandamál á íslenskum vinnumarkaði. Brýnt er að auka þekkingu og þjálfun stjórnenda þegar kemur að kynferðislegri áreitni á vinnustað - en einnig að uppræta þá meðvirkni og menningu sem gerir lítið úr og þaggar í þeim sem krefjast breytinga. Við þekkjum öll setninguna „Það má ekkert lengur“ og vitum fyrir hvað hún stendur. Tilgangur þessarar vitundarvakningar er að varpa ljósi á þá skekkju sem felst í slíkum hugsunarhætti og afvopna þau sem nota hann til þess að afsaka og viðhalda rótgróinni misbeitingu valds á vinnustöðum. Góð ráð og ábendingar má sjá hér að neðan.

  

Hvað er kynferðisleg áreitni og hvað er til ráða?