Nútímasamfélag einkennist af miklu áreiti, bæði í einkalífi og starfi. Fyrir utan öll venjuleg mannleg samskipti hafa á síðustu áratugum bæst við sífellt aukin rafræn samskipti. Við erum misvel í stakk búin til að takast á við mikið áreiti, sumir njóta sín best þegar allt er á fullu og kallað er úr öllum áttum á meðan aðrir eiga bágt með að einbeita sér í stöðugu ónæði og kysu að vera í rólegra umhverfi til að sinna verkefnum betur. En sama hver við erum þurfum við öll að geta stýrt áreitinu sem á okkur dynur.
Vinnum saman að jafnvægi
Virðum mörk
Áreiti frá vinnu utan vinnutíma er streituvaldur. Virðum mörk hvers annars. Það er forsenda vellíðunar á vinnustað. Vinnum saman að jafnvægi.
Samskipti
Stundum þurfum við bara að segja hvað er að angra okkur. Upphátt. Góð samskipti eru forsenda vellíðunar á vinnustað. Vinnum saman að jafnvægi.
Skýr skilaboð
Það skiptir máli að við vitum til hvers er ætlast af okkur. Skýr skilaboð eru forsenda vellíðunar á vinnustað. Vinnum saman að jafnvægi.