Þegar starfsfólk kemur aftur til vinnu eftir langtímaveikindi er oft þörf á að vinnustaðurinn sýni vissan sveigjanleika og stuðning.
Rannsóknir benda til þess að starfsfólk sem fær stuðning og hvatningu í veikindum sínum komi fyrr til starfa eftir veikindi og eigi auðveldar með það.
Aðstæður eru mismunandi hverju sinni og því er ekki auðvelt að setja fram ákveðnar vinnureglur. Mikilvægt er að yfirmaður hafi samband við starfsfólk á fyrstu viku veikinda og reglulega eftir það, en þó eftir samkomulagi.
Tilgangur slíkra samtala er að sýna umhyggju og gefa upplýsingar um starfsemina og vinnustaðinn. Gott er að ræða það hvort og þá hvernig starfsfólk kýs að fá upplýsingar um starfsemina á veikindatímanum.
- Stjórnandi hvetur starfsmanninn til að vera í sambandi við vinnufélaga sína og koma í heimsókn á vinnustaðinn. Þá gefst honum einnig tækifæri til að fylgjast með þróun á vinnustaðnum og ræða hugsanlega þörf fyrir aðlögun eða tímabundnar breytingar á verkefnum eða vinnutíma þegar kemur að því að snúa aftur til starfa.
- Ef ljóst er að veikindafjarvera standi lengur en fjórar vikur er mælt með því að stjórnandi og starfsmaður vinni saman að skriflegri áætlun um endurkomu til vinnu sérstaklega ef starfsmaður þarf að koma smám saman til baka til starfa.
- Æskilegt er að gera slíka áætlun í síðasta lagið 2-4 vikum eftir upphafsdag veikinda eða þegar bráðaástandi veikinda lýkur. Stuðningur við starfsmann í langtímaveikindum þarf að taka mið af líðan hans og áhuga á að koma aftur til starfa. Gott skipulag og samræming mismunandi aðila eykur líkur á velheppnaðri endurkomu til vinnu eftir veikindi.
- Þegar þörf er á að gera sérstaka aðlögun á vinnustað eða áætlun um endurkomu til vinnu eftir langvarandi veikindi er mikilvægt að vera í góðu sambandi við starfsmanninn og móta aðlögunarferlið með honum.
- Oft getur verið nauðsynlegt að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk sem hefur komið að meðferð einstaklingsins og ráðgjafa í starfsendurhæfingu sem geta leiðbeint bæði starfsmanninum og yfirmanni hans í aðlögunarferlinu á vinnustaðnum.
- Vinnuaðlögun að getu og þörfum starfsmanns er einstaklingsbundin bæði varðandi verkefni og vinnufyrirkomulag. Hafi hins vegar komið upp vandamál hjá starfsmanni sem tengjast aðstæðum og vinnuumhverfi þá getur það verið vísbending um að einhverju sé ábótavant og þörf sé á frekari endurskoðun.